Ráðgjöf í stefnumótun & árangursstjórnun

Vörðum leiðina að skýrri stefnu.

Höfuðátt vinnur með stjórnendum rótgróinna íslenskra fyrirtækja að því að finna réttu stefnuna og fylgja henni alla leið inn í daglegan rekstur með mælanlegum árangri.

Byggt á viðurkenndri, alþjóðlegri aðferðafræði í stefnumótun og árangursstjórnun.
Þjónusta

Frá greiningu til framkvæmdar

Heildstæð ráðgjöf fyrir stjórnendur og stjórnir sem standa á tímamótum. Hvert svið leysir afmarkað verkefni á leiðinni.

01

Stefnumótun

Hlutverk, gildi og framtíðarsýn skilgreind, og stefnumarkandi valkostir til næstu fimm ára settir fram með skýrum áherslum.

02

Stöðugreining

Hlutlæg greining á stöðu fyrirtækisins (rekstur, markaður, samkeppni og kjarnahæfni) sem traustur grunnur ákvarðana.

03

Árangursstjórnun

Innleiðing og eftirfylgni stefnu með 4DX og OKR: lykilmarkmið, mælikvarðar, eignarhald og framkvæmdaragi.

04

Áætlanagerð & viðskiptagreind

Fjárhags- og rekstraráætlanir, framlegðargreining eftir vöruflokkum og sölurásum, og gögn sem styðja ákvarðanir.

05

Endurhönnun viðskiptaferla

Einföldun og hagræðing ferla þar sem flækjustig grefur undan framlegð, fókus og rekstrarhagkvæmni.

Ekki viss hvar á að byrja?

Við byrjum oftast á stuttri stöðugreiningu sem skýrir hvar mestu áskoranirnar og tækifærin liggja.

Hafðu samband
Aðferðafræði

Reynsla byggð á margreyndri aðferðafræði sem virkar

Ráðgjöfin byggir á viðurkenndum, alþjóðlegum aðferðum sem hafa sannað sig, og við tengjum þær saman í eitt samhangandi ferli.

Kjarni & framtíðarsýn

Good to Great / BE 2.0

Aðferð Jim Collins við að móta varanlegan kjarna, gildi og framtíðarsýn, það sem fyrirtækið getur orðið best í.

Stefnumarkandi val

Playing to Win

Skýr markmið: í hverju á að sigra, hvar á að spila, hvernig á að vinna og hvaða getu þarf til þess.

Innleiðing & eftirfylgni

4DX & OKR

Stefna innleidd í daglegan rekstur með skýrum markmiðum, mælikvörðum og framkvæmdartakti.

Leiðin að framkvæmd
1
Greining

Greining & gagnaöflun

Yfirlit yfir rekstur, markað og kjarnahæfni byggt á gögnum fyrirtækisins.

2
Væntingar

Væntingar stjórnar

Vinnustofa með stjórn og eigendum um stöðu og framtíðarsýn.

3
Kjarni

Hlutverk, gildi & framtíðarsýn

Vinnustofa með lykilstarfsfólki þar sem hlutverk, gildi og framtíðarsýn er mótuð.

4
Val

Stefnumarkandi valkostir

Vinnustofur þar sem unnið er með lykilspurningarnar fimm: í hverju á að sigra, hvar á að spila, hvernig á að vinna, hvaða getu þarf og hvaða stjórnkerfi og ferla þarf.

5
Framkvæmd

Framkvæmd og innleiðing stefnu

Lykilverkefni, eignarhald og mælikvarðar sem skila stefnu í rekstur.

Verkefni & árangur

„Skýr stefna sem allir skilja og kemst alla leið inn í daglegan rekstur.“

Markmið hvers verkefnis hjá Höfuðátt

Meðmæli og dæmi um árangur eru veitt í trúnaði við fyrstu kynningu.

Sindri Sigurjónsson, stofnandi og ráðgjafi Höfuðáttar
Um mig

Sindri Sigurjónsson

Stofnandi og ráðgjafi Höfuðáttar

Ég vinn beint með æðstu stjórnendum: tek erfiða samtalið, hjálpa þeim að taka réttu ákvarðanirnar og fylgi stefnunni alla leið í framkvæmd.

  • 15 ára reynsla af stjórnenda- og ráðgjafarstörfum með leiðandi íslenskum fyrirtækjum
  • Sérsvið: stefnumótun, árangursstjórnun og framkvæmd
  • MSc í aðgerðarannsóknum og BSc í iðnaðarverkfræði
Hafðu samband

Ræðum málin

Förum yfir þær áskoranir sem þitt fyrirtæki stendur frammi fyrir.